Kæru foreldrar
Við lentum á forsíðu vefmiðils DV í gær 11.11.21 og fengum okkar skerf af 5 sekúndna frægð en ekki alveg fyrir það sem við hefðum viljað vera fræg fyrir. Fréttin er hins vegar ekki rétt og hið rétta er að við greiddum 450 þúsund til ráðgjafafyrirtækisins KVAN en ekki tæpar 3 milljónir. KVAN var með fræðslu fyrir okkur á skipulagsdegi í apríl síðast líðinn sem fól í sér þjálfun í jafningja-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Þessi dagur gerði mjög mikið fyrir starfsmannahópinn í heild sinni þrátt fyrir að við hefðum þurft að hafa hópinn tvískiptan vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Starfsfólkið talaði um að dagurinn hefði haft jákvæð áhrif á þeirra líðan og samskipti þeirra sín á milli.